Ég þakka Styrmi af því að hann vill það

26. november 2010 -

Við síðustu bloggfærslu mína lagði Styrmir nokkur orð í belg, og kvað það nauðsynlegt að blogga einu sinni í viku ef maður ætlaði að halda uppi bloggi á annað borð. Það getur svosem verið rétt, og tileinka ég því honum þessa færslu.

Nú er orðið mjög langt síðan ég kynntist Styrmi, og þótt ég sjái hann sjaldan núorðið er hann einn af mínum traustu og góðu vinum. Han er einn af þeim einstaklingum sem ég reyni alltaf að heimsækja þegar ég kem við á Íslandi. Hann hefur einnig komið í heimsókn til mín í Noregi, og var meira að segja veislustjóri í brúðkaupinu mínu.

Við konan mín hugsuðum að það væri sniðugt að velja einn veislustjóra sem talað gæti norsku, og annan sem talað gæti íslensku. Við hugsuðum að báðir einstaklingarnir væru færir um að halda uppi fjörinu, en eftir því sem leið á kvöldið var það meir og meir bara Styrmir sem hélt fjörinu uppi. Hann talaði þá bæði norsku og íslensku í bland, og reyndi meira að segja að trompa gamla norska grínið "Íslenska er bara norska með -ur endingu á öllum orðum". Hann kvaðst á sama hátt geta talað norsku með því að bæta -er endingu á öll orð, en sagði þó engum að hann bætti þessari endingu á orð sem þegar voru norsk, en ekki íslensk. Það skemmtilega var að frænka konunnar minnar hafði seinna á orði, að hún hefði heyrt Styrmi tala íslensku, og það hefði bara verið vel skiljanlegt.

Jæja, þetta var nú bara svona sem mér datt í hug að skrifa áður en ég skelli mér í háttinn.

 

Frá mörgu að segja

24. mai 2010 - Av:Sakki

Það hefur staðið til lengi núna að skrifa eitthvað á þetta blogg. Síðan síðast hefur mjög margt gerst, og margt á eftir að gerast á næstunni. Fyrst verð ég auðvitað að segja frá því að við höfum eignast okkar annað barn.

Lúkas fæddist á fæðingadeild Ullevaal universitetssykehus í Osló þann 13. apríl 2010 rétt fyrir klukkan 22. Þeir sem geta fylgst með mér á Facebook eða skoða flickr síðuna mína hafa náttúrulega komist að þessu fyrir löngu. Á myndinni fyrir ofan sjáið þið strákana tvo, Lúka og stoltan stórabróður, Markús sem heldur á honum.

Ein algengasta spurningin sem ég fæ er hvort að Jóhannes eða Matteus sé næstur. Því er auðsvarað: Það væri gaman ef næsta barn verður stelpa. En, ef það verður strákur lofum við samt ekki að það verði líka guðspjallamaður. Ætli það verði ekki Bárður, Hálfdán eða Kormákur eða eitthvað í þá veru.

Sumir spyrja líka hvort að Markús sé nokkuð afbrygðissamur. Við ákváðum löngu áður en Lúkas fæddist að við yrðum að vera vel á varðbergi og fyrirbyggja sem mest að svo yrði. Markús fékk nýtt rúm þegar í febrúar, þannig að honum fyndist ekki að Lúkas væri að stela rimlarúminu hans. Þegar gesti ber að gerði höfum við oft beðið þá um að heilsa fyrst upp á Markús áður en þeir skoða nýja krílið. Að lokum reynum við að leyfa Markúsi að hjálpa svolítið til og ekki síst halda á litlabróður, klappa honum, finna snuð handa honum og svo framvegis. Hingað til hefur þetta heppnast mjög vel, en það er samt sumt sem Markús er harður á. Lúkas fær t.d. ekki að leika sér með dótið hans. Hann má helst ekki heldur vera of mikið inni á herbergi Markúsar, og það má alla vega ekki leggja hann í rúmið hans. Þetta er svona jafnvægisæfing, en ég tel að við höfum gott af henni.

Ég ákvað snemma í vor að mig langaði að vinna ákveðið verkefni, mér sjálfum til ángægju og yndisauka, sem er kallað Project 365. Það felst í því að taka eina ljósmynd á dag í eitt ár. Ég byrjaði á þessu sama dag og Lúkas fæddist og ætla mér að halda áfram þar til hann verður eins árs. Ég skelli myndunum því sem næst jafnóðum á flickr síðuna mína. Oft skrifa ég eitthvað smáræði með myndunum, þannig að þær verða líka nokkurskonar blogg.

Skólinn fer alveg að verða búinn hjá mér, og ætla mér að skila ritgerð fyrir 15. júní. Fjellahug hefur ekki getað lofað mér fullu starfi eftir námslok, þannig að ég hef verið að leita að starfi á öðrum miðum. Núna lítur út fyrir að ég fái starf hjá Norsku ríkiskirkjunni í bæ sem heitir Geilo. Við erum enn að skoða málið, og þetta er svolítill spotti að flytja. Ég veit ekki alveg hver niðurstaða okkar verður, en við verðum allavega að ákveða okkur mjög fjlótt. Staðan sem er í boði er hluti af skírnarfræðslu kirkjunnar. Ég mun þá taka þátt í skipulagningu barna og unglingastarfs, og vera virkur þáttakandi í því eins og hægt er.

Læt þetta duga í dag. Ég stefni að því að skrifa meira þegar ég veit hvað kemur út úr þessum atvinnumálum.

 

Kerti í stað hitaveitu

09. januar 2010 - Av:Sakki

Það hefur verið kallt hér í Osló síðustu vikur og daga. Fyrir jól fór frostið rétt niður fyrir tíu stig. Nú eru um 18 stig hér fyrir utan. Því miður hitaveita varla til hérlendis, og miðstöðin í húsinu ekki mjög kröftug. Ofnarnir í íbúðinni verða varla meir en hálfvolgir. Þar að auki mættu dyr og gluggar vera þéttari. Til þess að ná hitanum upp eina eða tvær gráður höfum við brugðið á það ráð að kveikja á kertum. Það hjálpar meir en mig hefði grunað, og svo gefur það notarlega stemmingu. Nú helst hitastigið við uþb. 17-19 gráður.

Við erum auðvitað mjög þakklát fyrir að hafa það svona hlýtt. Margir hér í landi kynda hús sín með eldivið. Byrgðirnar af honum eru að klárast út um allt og eftir einungis nokkra daga verður ekkert eftir. Það tekur tíma að höggva nýjan við og þurrka hann þannig að það er of seint að byrja á því núna. Eina vonin fyrir þetta fólk er að hægt sé að flytja inn nægilegt magn á stuttum tíma. Þ.e. eða að kynda með rafmagni, en margir hafa ekki efni á því. Sérstaklega ekki ellilífeyrisþegar.

Leiðindaveira og smá fréttir af snáðanum

26. oktober 2009 - Av:Sakki

Það lítur út fyrir að ég hafi fengið í mig þessa leiðindaveiru þegar ég var á Íslandi, því um leið og ég kom heim veiktist ég, trúlega með svínaflensu. Nú er hún nú farin að hjaðna vel og sem betur fer hefur hvorki konan né krakkinn smitast. Þá má svo sem sjá þetta frá björtu hliðinni: ég hef fengið nokkra auka daga í frí. Á hinn bóginn er ég nú eiginlega orðinn leiður á að hanga einn heima.

Jájá, svona getur þetta nú verið, en mér datt í hug að nota tækifærið til að segja aðeins frá því hvernig gengur með Markús. Síðast þegar ég skrifaði um hann var hann enn ekki alveg farinn að ganga. Nú virðist það mjög langt síðan hann nennti nokkuð að skríða og þess í stað hleypur hann um öll gólf, og klifrar í öllu sem han ræður við. Hann getur jafnvel klifrað upp og sest í barnastólinn sinn, og svo klifrað út úr honum aftur. Enn sem komið er hefur hann ekki orðið lofthræddur, en ef hann heldur þessu áfram hlýtur hann bráðum að detta og meiða sig þannig að hann þori ekki meir.

Leikskólinn byrjaði fyrir nokkrum vikum síðan, og hann átti í byrjun nokkuð erfitt með að aðlagast honum. Hann vildi ekki borða neitt á staðnum og í fyrstu vildi hann heldur ekki sofa. Nú virðist þetta hinsvegar vera komið vel á skrið og Markúsi líður mjög vel með öllum hinum krökkunum. Sérstaklega líkar honum að vera úti á lóðinni og leika sér í sandinum. Rennibrautirnar eru líka mjög spennandi. Annars reynum við nú að halda honum heima þegar við getum, enda gott fyrir hann að vera eins mikið með fjölskyldunni eins og hægt er.

Orðin standa ennþá svolítið á sér, en nú finnst okkur við allavega heyra mamma og pabbi (og reyndar líka Sakki). Svo eru nokkur sem hann hefur kunnað lengur, eins og Takk, Hade (Bless), Nei og Já. Einhverra hluta egna er hann líka byrjaður að telja upp fyrstu stafina í stafrófinu. Hugsanlega hefur hann lært það í leikskólanum.

Markús er líka svolítill söngfugl og tekur lagið nokkuð reglulega. Yfirleitt er þetta eitthvað frumsamið og það er mjög sjaldan að við getum greint lög sem við þekkjum til. Það er bara borðsöngurinn okkar "O du som metter liten fugl" og lagið "Bæ, bæ hvite lam" sem við getum greint. Hið síðarnefnda hefur hann líklegast lært á leikskólanum, þótt svo að við stundum syngjum það heima líka.

Alltaf betra og betra að búa í Noregi

13. oktober 2009 - Av:Sakki

Sem Íslendingur búsettur í Noregi eru að sjálfsögðu einhverjar persónur og hlutir sem ég sakna. Það væri t.d. gaman að hafa fjölskylduna og nokkra gamla vini hérna. Fyrir utan fólk sem ég þekki er það næstum því bara einstakar matvörur sem ég sakna, og smám saman er alltaf að batna í því.

Matvörur sem ég er vanur frá íslandi og langar ennþá að hafa hjá mér í Noregi er nokkurn veginn takmarkað við eftirfarandi: Hangikjöt, laufabrauð, rúgbrauð, Egils malt, Skyr og nokkrar tegundir af salgæti: Trom, Þristur og etv. hjúplakkrís. Hið síðastnefnda hefur verið að rata í verslanir hér síðustu tvö-þrjú árin og nú er hægt að kaupa draum, rís og nokkrar aðrar tegundir. Ég hef komist að því að það er auðvelt að baka rúgbrauð, meira að segja þannig að Myllunni verður skömm af. Laufabrauð ætti ég nú líka að geta bakað án mikilla vandræða.

Þá er þrennt eftir: Hangikjöt, malt og skyr. Hér kemur það sem mig eiginlega langar að segja: Nú er loksins hægt að kaupa skyr í norskum matvöruverslunum. Enn sem komið er fæst einungis bragðbætt hrært skyr, en kannski lagast það nú smám saman. Enn ein góð ástæaðan til þess að koma heim frá útlegðinni á skerinu veðrasama.

 

Skyrið auglýst í neðanjarðarlestinni

Fjögur blöð

09. oktober 2009 - Av:Sakki

Ég veit ekki hvort að ég hef sagt frá mínu nýjasta áhugamáli, en það er nokkuð sem ég hef fengið í kaupbæti með vinnunni. Fyrir rúmu ári síðan tók ég þátt í ritsjórn jólablaðs skólans, og í framhaldi af því var mér gefin aðalábyrgð með blaðinu. Nú hef ég staðið að baki fjórum tölublöðum og ég verð að segja að þetta verður bara skemmtilegra og skemmtilegra.

Síðasta blað, og það fjórða sem ég hef unnið að , kom út fyrir um tveimur vikum síðan. Þetta blað var töluverður áfangi fyrir mig, og ég hef beðið nokkuð lengi eftir honum. Síðan ég tók við hef ég fengið stærra brot (Frá A5 í smækkað A4), fleri síður, betri myndir og nýtt útlit. Það gæti varla verið betra. En sérstaklega ljósmyndunin hefur verið atriði fyrir mig. Ég tel að blaðið geti ekki verið gott, sama hversu flott umbrotið er, ef myndirnar eru lélegar. Það vilja þær oft vera ef maður biður greinahöfundi að senda með nokkrar.

Ég og Svenni höfum tekið næstum því allar myndirnar í síðasta blaði sjálfir. Til þess höfum við notað Nikon D40 SLR vél, tvö til þrjú flöss, flassfjarstýringu, statív og eina regnhlíf. Svo höfum við notað allnokkurn tíma í bæði skipulagningu og eftirvinnu á myndunum.

Myndina með þessu innleggi tók ég uppi á þaki á stúdentaheimilinu síðdegis í dag. Ég hafði myndavélina á þrífæti og notaði 5s seinkun, sólarljósið og tvö flöss. Það tók stuttan tíma og þetta var eins og alltaf einstaklega gaman. Ef einvherjir fleir hafa sama áhugamál nota ég flickr til að sýna myndirnar mínar og leitast eftir viðbrögðum. Svenni er með svipaða síðu á sama stað.


http://www.flickr.com/photos/sakariasingolfsson

http://www.flickr.com/photos/szimsen

 

Hér gengur lífið sinn vanagang

19. juni 2009 - Av:Sakki

Jæja, þá kemur smá uppfærsla efir allnokkra bið. Ég hef að venju einhverjar fréttir bæði af Markúsi litla og af okkur sjálfum.

Síðan ég sagði frá honum síðast hefur Markús vaxið og þroskast mjög mikið. Allavega finnst okkur það. Við tökum eftir því að hann er farinn að skilja það sem gerist í kring um hann og bregst á viðeigandi hátt við mismunandi atburðum. Til dæmis getur gann heyrt hvort að við munum eftir því að loka barnahliðinu eftir að við höfum verið í eldhúsinum. Ef við gleymum því kemur hann á ofsahraða til þess að leika sér þar inni. Hann dregur út skrúffur og opnar skápa og ef hann fær tækifærið til tæmir hann þá. Honum finnst líka gaman að leika sér úti á svölum. Við keyptum lítinn sandkassa í vor sem er orðið uppáhalds leikfangið hans. Hann getur setið í honum, jafnvel í meir en klukkutíma án þess að kvarta. Svo verð ég að sópa allar svalirnar þegar hann er búinn, því þá er nærri því meiri sandur á verandargólfinu en í sandkassanum sjálfum.

Sjálfur hef ég meira að gera í vinnunni en ég hafði gert ráð fyrir þegar ég tók við starfinu. Mest af öllu er það pappírsvinna sem þarf að greiða úr, og það er alls ekki auðvelt þegar ég þarf að fá alla íbúa í húsinu til að skrifa undir hver sinn samning. Svo er það alls konar eftirlit og viðhald sem ég þarf að fylgjast með. Þetta tekur skiljanlega sinn toll af náminu og nú er svo komið að ég næ ekki að klára ritgerðina mína fyrir sumarið. Ég sótti um frest þangað til um miðjan september, en fékk ennþá meir en ég bað um. Ný dagsetning er 15. desember.

Annað atriði sem ég vinn við á skólanum er ritstjórn blaðsins FJELLHAUG. Þetta ber með sér að ég verð að taka myndir fyrir hinar ýmsu greinar sem birtast í blaðinu, svo fremi sem ég ekki finn einhvern annan til að gera það. Studum er líka hægt að kaupa myndir á netinu, en sannleikurinn er sá að ég hef haft stórkostlega gaman af þessu. Við Margrethe keyptum Nikon D40 myndavél síðastliðið sumar og ég hef notað hana til að taka myndirnar. Ég hef fundið allskonar hugmyndir og ráð á netinu sem ég hef tileinkað mér á þessu hálfa ári. Þetta er stórskemmtilegt áhugamál.

Konan mín, Margrethe, kláraði vetrarprófin sín stuttu eftir að hún byrjaði aftur í skólanum. Það hefði kannski verið einfaldara ef Markús hefði fæðst einum mánuði seinna því þá hefði hún ekki byrjað aftur fyrr en í haust. Engu að síður gengu prófin ágætlega og alvaran tekur aftur við af fullum krafti í haust.

Fyrir rúmum tveimur vikum keyptum við okkar fyrsta sameiginlega bíl. Að þessu sinni varð Mitsubishi Space wagon fyrir valinu, árgerð 1996. Þetta er engin skutla, en duguar okkur sem fjölskyldubíll um stundar sakir. Ég geri ráð fyrir að hann komist í gegn um næstu skoðun í janúar án mikilla erfiðleika og þá dugir hann alla vega til 2011, því norska skoðunin gildir í tvö ár. Fyrir utan gott pláss hefur þessi bíll annan skemmtilegan eiginleika. Hann er nefnilega útbúinn sértöku brennslukerfi sem gerir að hann getur gengið fyrir LPG gasi. Það fæst allavega á einni bensínstöð í nágreni við okkur, og kostar ekki nema helming av því sem bensín gerir. Því miður er þetta ekki fullkomnu lagi, en við verðum bara að finna út hvernig gera má við það.

Jæja, þetta er farið að verða nokkuð langt, þannig að ég læt það duga að sinni. Heil og sæl.

Copyright © 2001-2010, Sakarías Ingólfsson | This webpage is powered by TYPO3 CMS
Image manipulation is done with the GIMP, Photoshop Elements, Picasa and iPhoto.
Public domain media fetched from Wikimedia commons unless otherwise noted | Kontaktinfo