Frá mörgu að segja
24. mai 2010 - Av:Sakki

Lúkas fæddist á fæðingadeild Ullevaal universitetssykehus í Osló þann 13. apríl 2010 rétt fyrir klukkan 22. Þeir sem geta fylgst með mér á Facebook eða skoða flickr síðuna mína hafa náttúrulega komist að þessu fyrir löngu. Á myndinni fyrir ofan sjáið þið strákana tvo, Lúka og stoltan stórabróður, Markús sem heldur á honum.
Ein algengasta spurningin sem ég fæ er hvort að Jóhannes eða Matteus sé næstur. Því er auðsvarað: Það væri gaman ef næsta barn verður stelpa. En, ef það verður strákur lofum við samt ekki að það verði líka guðspjallamaður. Ætli það verði ekki Bárður, Hálfdán eða Kormákur eða eitthvað í þá veru.
Sumir spyrja líka hvort að Markús sé nokkuð afbrygðissamur. Við ákváðum löngu áður en Lúkas fæddist að við yrðum að vera vel á varðbergi og fyrirbyggja sem mest að svo yrði. Markús fékk nýtt rúm þegar í febrúar, þannig að honum fyndist ekki að Lúkas væri að stela rimlarúminu hans. Þegar gesti ber að gerði höfum við oft beðið þá um að heilsa fyrst upp á Markús áður en þeir skoða nýja krílið. Að lokum reynum við að leyfa Markúsi að hjálpa svolítið til og ekki síst halda á litlabróður, klappa honum, finna snuð handa honum og svo framvegis. Hingað til hefur þetta heppnast mjög vel, en það er samt sumt sem Markús er harður á. Lúkas fær t.d. ekki að leika sér með dótið hans. Hann má helst ekki heldur vera of mikið inni á herbergi Markúsar, og það má alla vega ekki leggja hann í rúmið hans. Þetta er svona jafnvægisæfing, en ég tel að við höfum gott af henni.
Ég ákvað snemma í vor að mig langaði að vinna ákveðið verkefni, mér sjálfum til ángægju og yndisauka, sem er kallað Project 365. Það felst í því að taka eina ljósmynd á dag í eitt ár. Ég byrjaði á þessu sama dag og Lúkas fæddist og ætla mér að halda áfram þar til hann verður eins árs. Ég skelli myndunum því sem næst jafnóðum á flickr síðuna mína. Oft skrifa ég eitthvað smáræði með myndunum, þannig að þær verða líka nokkurskonar blogg.
Skólinn fer alveg að verða búinn hjá mér, og ætla mér að skila ritgerð fyrir 15. júní. Fjellahug hefur ekki getað lofað mér fullu starfi eftir námslok, þannig að ég hef verið að leita að starfi á öðrum miðum. Núna lítur út fyrir að ég fái starf hjá Norsku ríkiskirkjunni í bæ sem heitir Geilo. Við erum enn að skoða málið, og þetta er svolítill spotti að flytja. Ég veit ekki alveg hver niðurstaða okkar verður, en við verðum allavega að ákveða okkur mjög fjlótt. Staðan sem er í boði er hluti af skírnarfræðslu kirkjunnar. Ég mun þá taka þátt í skipulagningu barna og unglingastarfs, og vera virkur þáttakandi í því eins og hægt er.
Læt þetta duga í dag. Ég stefni að því að skrifa meira þegar ég veit hvað kemur út úr þessum atvinnumálum.
Fjögur blöð
09. oktober 2009 - Av:Sakki

Síðasta blað, og það fjórða sem ég hef unnið að , kom út fyrir um tveimur vikum síðan. Þetta blað var töluverður áfangi fyrir mig, og ég hef beðið nokkuð lengi eftir honum. Síðan ég tók við hef ég fengið stærra brot (Frá A5 í smækkað A4), fleri síður, betri myndir og nýtt útlit. Það gæti varla verið betra. En sérstaklega ljósmyndunin hefur verið atriði fyrir mig. Ég tel að blaðið geti ekki verið gott, sama hversu flott umbrotið er, ef myndirnar eru lélegar. Það vilja þær oft vera ef maður biður greinahöfundi að senda með nokkrar.
Ég og Svenni höfum tekið næstum því allar myndirnar í síðasta blaði sjálfir. Til þess höfum við notað Nikon D40 SLR vél, tvö til þrjú flöss, flassfjarstýringu, statív og eina regnhlíf. Svo höfum við notað allnokkurn tíma í bæði skipulagningu og eftirvinnu á myndunum.
Myndina með þessu innleggi tók ég uppi á þaki á stúdentaheimilinu síðdegis í dag. Ég hafði myndavélina á þrífæti og notaði 5s seinkun, sólarljósið og tvö flöss. Það tók stuttan tíma og þetta var eins og alltaf einstaklega gaman. Ef einvherjir fleir hafa sama áhugamál nota ég flickr til að sýna myndirnar mínar og leitast eftir viðbrögðum. Svenni er með svipaða síðu á sama stað.
http://www.flickr.com/photos/sakariasingolfsson
http://www.flickr.com/photos/szimsen
