Lax og krækiber
01. juli 2011 -

Hér um daginn sá ég brot úr einum matreiðsluþátta Jamie Oliver. Karlinn var að grilla svínakjöt og steikte ettihvert gums til að hafa með. Mér fannst ekki allt vera áhugavert, en tók eftir einu góðu ráði. Jamie sagði að það sem gerir grillmat svo góðan er að hluta til reykurinn frá kolunum. Þar af leiðandi er tilvalið að bragðbæta reykinn, t.d. með því að skella fersku timian beint á kolin. Góð hugmynd, hugsaði ég með sjálfum mér, og ákvað að prufa þetta. Ég hef reynt ýmsar jurtir, en í raun og veru breytir þetta ekki voaðlega miklu. Sérstaklega ekki ef maður notar íkveikilög til að hita kolin.
Fyrir nokkrum árum, þegar ég og konan mín giftum okkur, fengum við í því tilefni kúlugrill að gjöf frá vinum okkar. Kúlugrill má nota við sérstaka grillaðferð þar sem maturinn er ekki hafður yfir kolunum, heldur er formið á grillinu notað til að umlykja matinn með heitu lofti. Kúlugrillið virkar þá eins og ofn. Ég var búinn að vera með þetta í huga í nokkra daga og fékk þá hugmynd sem mér þótti feykigóð.
Ég ákvað að skella mér út í móa og tína svolítið krækiberjalyg, svona hálfan burðarboka. (Mér datt líka í hug að nota Einivið, en það verður að bíða næstu tilraunar). Svo keypti ég svolítinn lax. Helst hefði ég vilja hafa hann með roðinu, en slíkur var hann ekki til í versluninni. Svo undirbjó ég grillið. Ég setti kolin öll í hrúgu öðru megin í grillinu og lét þau brenna í hálftíma til að þau yrðu almeinilega heit. Án þess að dreifa úr þeim setti ég ristina yfir og bjó til lítinn lyngbedda í hinum endanum. Ég kryddaði laxinn með salti og svörtum pipar og skellti honum svo á beddann. Til þess að fá mikinn og góðan reyk setti ég væna fúlgu af lyngi beint yfir kolunum áður en ég kom lokinu fyrir.
Fljótlega rauk svo kröfuglega úr grillinu að ekki var vænlegt að vera í vindáttinni. Auðvitað þurfti að bæta á lyngið öðru hverju, því það brann upp tiltölulega fljótlega. Ég held að það sé góð hugmynd að hafa það vel blautt þegar það er sett á grillið. Svona hélt ég áfram í uþb. hálftíma. Það er svosem nokkuð langur tími til að grilla lax, en vegna aðferðarinnar var hitinn ekki svo yfirþyrmandi að það yrði honum til skaða.
Þá var komið að því að reyna fiskinn. Ég bar hann fram með soðnum kartöflum, sýrðum rjóma og grænu salati. Alger yndisauki. Bragðið var augljóslega sterkara en á soðnum laxi, en þó ekki eins kröftugt eins og á reyklaxi. Ég mæli eindregið með þessu. Laxinn var algert salgæti, en samt sem áður ódýr.
