56 - 3,9

16. mai 2008 - Av: Sakki

Jæja, þá get ég loksins sagt frá því að ég hef eignast lítinn strák. Hann var við fæðingu 56 cm langur og 3,9 kíló (þ.e. tæplega 16 merkur fyrir þá sem skilja slíkt). Hann er ljósbrúnn og með heilmikið dökkt hár. Í dag fékk hann loksins að koma heim með mömmu og pabba.

Vatnið hjá henni Margrethe, konunni minni, fór að leka á laugardagsmorgun. Eftir það gengu hlutirnir mjög hægt fyrir sig. Eftir miklar þjáningar konunnar fæddist sonur okkar þriðjudaginn 13. maí, rétt fyrir klukkan eitt eftir hádegi.

Þótt hann sé almennt álitinn stór, þykir mér hann vera ósköp lítill. Hann byrjaði ekki að borða almeinilega fyrr en í gær, en nú stendur hann sig vel. Síðustu nótt svaf hann líka næstum alla nóttina.

Á morgun er 17. maí, þjóðhátíðardagurinn, þannig að hann kom rétt í tæka tíð.

 

Ingen kommentarer

Ny kommentar

Må fylles ut
Må fylles ut
CAPTCHA image for SPAM prevention
If you can't read the word, click here.
Må fylles ut
Copyright © 2001-2010, Sakarías Ingólfsson | This webpage is powered by TYPO3 CMS
Image manipulation is done with the GIMP, Photoshop Elements, Picasa and iPhoto.
Public domain media fetched from Wikimedia commons unless otherwise noted | Kontaktinfo