Ég þakka Styrmi af því að hann vill það
26. november 2010 -

Nú er orðið mjög langt síðan ég kynntist Styrmi, og þótt ég sjái hann sjaldan núorðið er hann einn af mínum traustu og góðu vinum. Han er einn af þeim einstaklingum sem ég reyni alltaf að heimsækja þegar ég kem við á Íslandi. Hann hefur einnig komið í heimsókn til mín í Noregi, og var meira að segja veislustjóri í brúðkaupinu mínu.
Við konan mín hugsuðum að það væri sniðugt að velja einn veislustjóra sem talað gæti norsku, og annan sem talað gæti íslensku. Við hugsuðum að báðir einstaklingarnir væru færir um að halda uppi fjörinu, en eftir því sem leið á kvöldið var það meir og meir bara Styrmir sem hélt fjörinu uppi. Hann talaði þá bæði norsku og íslensku í bland, og reyndi meira að segja að trompa gamla norska grínið "Íslenska er bara norska með -ur endingu á öllum orðum". Hann kvaðst á sama hátt geta talað norsku með því að bæta -er endingu á öll orð, en sagði þó engum að hann bætti þessari endingu á orð sem þegar voru norsk, en ekki íslensk. Það skemmtilega var að frænka konunnar minnar hafði seinna á orði, að hún hefði heyrt Styrmi tala íslensku, og það hefði bara verið vel skiljanlegt.
Jæja, þetta var nú bara svona sem mér datt í hug að skrifa áður en ég skelli mér í háttinn.

Ánægður með frænkuna hehe.
Ny kommentar