Ekki er öll geðveikin eins

19. september 2008 - Av: Sakki

Eins og margir vita eru íþróttir í óhófi ekki heilsusamlegar. Margir atvinnumenn í handbolta, fótbolta og öðrum krefjandi íþróttum eyðileggja liði og bein og sumir enda jafnvel í hjólastól. En hér er íþrótt sem sprengir öll bönd.

Þríþrautin Ironman er haldin á Hawaii einu sinni á ári.  Keppendur stilla upp og synda fyrst tvær og hálfa mílu, eða tæpa fjóra kílómetra. Að þessu loknu setjast þeir upp á reiðhjól og fara ekki af því fyrr en þeir hafa hljólað um 180 kílómetra. Eins og að þetta væri ekki nóg, ljúka þeir þríþrautinni á því að hlaupa maraþon, sem er 42 kílómetrar. (Sjá heimasíðu IronMan)

Heimsmetið er í höndum Belga sem kláraði þríþrautina á rétt rúmum átta tímum. Það þýðir að hann hefur þurft að halda meðalhraða upp á næstum því 30 km/klst. Til viðmiðunar tæki tæplega tvo og hálfan tíma að keyra leiðina ef maður fer ekki  yfir íslenskann hámarkshraða.

Ég sá þetta í sjónvarpinu rétt áðan. Þá var sýnt frá endaspretti í kvennaflokki. Konurnar voru nokkuð illa á sig komnar þegar þær komu í mark og sumar hverjar hrundu saman rétt fyrir marklínuna. Ein af þeim tók sig til og skreið í mark... Því miður tókst mér ekki að finna nákvæmnlega þetta myndskeið á youtube, en ég fann eitt svipað. Ég skelli því með hér að neðan.

Ingen kommentarer

Ny kommentar

Må fylles ut
Må fylles ut
CAPTCHA image for SPAM prevention
If you can't read the word, click here.
Må fylles ut
Copyright © 2001-2010, Sakarías Ingólfsson | This webpage is powered by TYPO3 CMS
Image manipulation is done with the GIMP, Photoshop Elements, Picasa and iPhoto.
Public domain media fetched from Wikimedia commons unless otherwise noted | Kontaktinfo