Fyrstu vikurnar
28. mai 2008 - Av: Sakki

Sofandi í fangi mömmu
Í gær var hann Markús okkar tveggja vikna gamall. 13 maí rétt fyrir 13 kom hann í heiminn og þann dag breyttist líf okkar foreldranna til allrar frambúðar. Mig hafði aldrei grunað hversu mikið stökk það var þegar fyrsti fjölskylduaukinn kom.
Það er margt sem við vorum undirbúin fyrir, svo sem bleyjuskipti, böð, göngutúrar með kerru, grenjur um miðja nótt, vandræði með mötun o.s.frv. En það er einnig mjög margt sem við vorum ekki undirbúin fyrir. Til dæmis það að allt hið ofangreinda getur komið á sama tíma og ekki eitt í einu.
Í síðustu viku var mamma mín, þ.e. hin nýbakaða amma í heimsókn og hún létti undir með okkur fyrstu vikuna. Það var gott að fá hjálp, en við þurfum líka að geta bjargað okkur sjálf. Það mun taka á en ég er viss um að það hefst. Smám saman hlýtur þetta allt að komast í vana.
Við erum svo sannarlega þákklát fyrir hann Markús okkar og biðjum Drottinn um að varðveita hann í frelsi sínu.

Ny kommentar