Gleðilegt sumar
24. april 2008 - Av: Sakki

Frá svölunum í morgun
... og takk fyrir veturinn. Í tilefni dagsins ákvað ég að flagga íslenska fánanum frá svölunum okkar. Ekki leið á löngu þar til ég fékk spurningar um fánan, og hvort að það þýddi að fjölskylduaukinn væri kominn í heiminn. Þannig er nú ekki og mér þykir amk. ólíklegt að hann komi í þessari viku.
En (aftur) í tilefni dagsins finnst mér viðeigandi að vitna í sumarkveðju Páls Ólafssonar.
Ó, blessuð vertu sumarsól,
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
Nú fossar, lækir, unnir, ár
sér una við þitt gyllta hár.
Nú fellur heitur haddur þinn
um hvíta jökulkinn.

Ny kommentar