Haustið er komið
25. september 2008 - Av: Sakki

Það ætti alls ekki að vera erfitt. Allt sem maður á að gera er að flysja eplin og taka út kjarnahúsin, setja þau í vatn og sjóða. Eftir nokkra suðu getur maður bætt við sykri eftir þörf. En einhverja hluta vegna virkaði þetta ekki alveg svona vel hjá mér. Eplin maukuðust að vísu en kannski allt of vel, því maukið varð allt allt of þunnt. Ætli ég veriði ekki að nota minna vant næst.
En að öðru. Meðan ég var að skrifa þetta innlegg lét Markús heyra í sér. Við erum nýbúinn að leggja hann og hann var greinilega ekki alveg sofnaður. Þegar ég kom inn á herbergi til hans verð ég að segja að hann hafi komið mér að óvörum. Hann var búinn að sparka af sér sænginni sem er alls ekki óvenjulegt. En að þessu sinni lét hann það ekki nægja heldur hafði hann snúið sér 180 gráður. Ekki yfir á magan, heldur þannig að hann snéri öfugt í rúminu. Ég skil ekki hvernig hann fór að því, vegna þess að rúmið er nokkuð mjótt. Ætli ég verði ekki að taka þessu sem merki þess að hann er að þroskast.

Ny kommentar