"Kristilegar" greinar á Wikipedia

15. desember 2007 - Av: Sakki

Wikipedia á Íslensku
Um daginn var mér litið inn á íslenska hlið alfræðiorðabókarinnar Wikipedia. Ég fletti upp nokkrum orðum eins og Biblían, Jesús og kristni. Greinunum er augljóslega mjög ábótavant, og gaman væri að setja saman hóp sem hefði það hlutverk að endurbæta þær.

Ég geri ráð fyrir því að flestir þeir sem kunna að taka upp á því að lesa þessa síðu kannist við alfræðiorðabókina wikipedia. Til öryggis ætla ég þó að útskýra það í mjög stuttu máli. Wikipedia er stafræn alfræðiorðabók sem rekin er á léninu wikipedia.org  Það er ekki ákveðinn hópur fræðimanna sem uppfærir innhald síðunnar heldur eru það gestir síðunnar. Hver sem er getur smellt á þar til gerðan tengil til þess að bæta við, eða breyta efni orðabókarinnar.

Þetta hefur auðvitað bæði kosti og galla. Helsti kosturinn er að uppfærsla orðabókarinnar er mun hraðari en ef um lokaðan hóp fræðimanna væri að ræða. Þar að auki þýðir þetta að efni síðunnar er einnig mun víðtækara. Á hinn bóginn er versti galli síðunnar sá að stór hluti efnisins stenst ekki nánari skoðun efnisins. Sumar staðhæfingar eru rangar og aðrar eru hreinlega innihaldslausar.

Það efni sem upp kemur ef maður flettir upp ýmsum kristnum hugtökum er dæmi um óvandað verk. Sumar greinarnar bera þess merki að höfundur þeirra hefur reynt að vera hlutlaus en misheppnast illa. Greinin um biblíunna þyrfti meðal annars að innihalda umfjöllun um efni hennar, stöðu innan kristinnar trúar (sem og annarra trúarbragða), handritafræði, tengla í sér greinar fyrir nýja og gamla testamentið, sem og einstakar bækur. Greinin um kristindóminn þyrfti að skýra frá stærstu greinum kristindómsins og meginboðskapi trúarinnar: kaþólsku kirkjunnar, austurkirkjunnar og hinna ýmsu mótmælendakirkja. Þar að auki þyrfti sú grein að segja í stuttu máli frá þeim trúarsamfélögum sem kalla sig kristin en eru þó ekki viðurkennd af "öðrum" kristnum samfélögum (t.d. Mormónar og Vottar Jehóva)

Eins og ég nefndi efst í þessari færslu hefði verið gaman að safna saman áhugasömum mönnum og skrifa nýjar greinar fyrir wikipedia. Slíkt verk er þó svo stórt að það getur tekið mörg ár þótt svo að hægt væri að finna stóran hóp af áhuagsömu fólki. Þeir sem eru áhugasamir mættu gjarnan senda mér línu.

Gravatar: Ryan
Den 20. April 2012 skrev Ryan følgende:
Never seen a beettr post! ICOCBW
 
Gravatar: jquzmvmf
Den 22. April 2012 skrev jquzmvmf følgende:
 

Ny kommentar

Må fylles ut
Må fylles ut
CAPTCHA image for SPAM prevention
If you can't read the word, click here.
Må fylles ut
Copyright © 2001-2010, Sakarías Ingólfsson | This webpage is powered by TYPO3 CMS
Image manipulation is done with the GIMP, Photoshop Elements, Picasa and iPhoto.
Public domain media fetched from Wikimedia commons unless otherwise noted | Kontaktinfo