Lélegur í stafsetningu?
11. juni 2008 - Av: Sakki

Ætti ég kannski að þrjóskast við eins og Laxness og kalla lélega stafsetningu list?
Fyrir löngu skrifaði ég innlegg í netdagbókina um lélegan fréttaflutning á mbl.is. Oftar en ekki rekst ég á villur bæði í stafsetningu og málfræði. Ástæðan hlýtur eiginlega að vera sú að höfundar fréttana gefa sér ekki tíma til þess að lesa þær yfir áður en þær eru settar á vefinn.
En ég ætti kannski ekki að hrópa allt of hátt. Þessi innlegg mín í netdagbókinni eru nefnilega ekki til fyrirmyndar, enda les ég heldur ekki yfir. Ég ætti auðvitað að gera það, en mér finnst raunhæfara að biðja ykkur um að benda mér á. (Að öðrum kosti gæti ég þrjóskast við eins og Laxness og kallað hina lélegu stafsetningu mína list)
Ástæðan fyrir að ég nefni þetta er það sem ég skrifaði fyrr í dag. Þá skrifaði ég krisniboðssalurinn í staðinn fyrir kristniboðssalurinn. Mér fannst þetta nokkuð ljót villa, og hún er langt frá því að vera sú eina. Sama gildir um málfarið.

Ny kommentar