Markús
05. november 2008 - Av: Sakki

Það er merkilegt fyrir ungan pabba að horfa á strákinn sinn vaxa og þroskast, svo hratt að ég get séð mun frá degi til dags. Það eru allnokkrir dagar síðan hann lærði að snúa sér frá bakinu og yfir á magan. Hann rúllar sér í báðar áttir (hægri og vinstri) en kemst sjaldan aftur yfir á bakið. Þegar það þó hefur tekist, bregður honum svo mikið að hann fer að skæla.
Í fyrradag tók Markús flöskuna sína sjálfur, náði að koma snuðinu upp í sig og drekka án aðstoðar. Það var greinilega mikið afrek því nú vill hann alltaf hjálpa til, eða jafnvel borða sjálfur. Mér finnst nokkuð merkilegt hvað þetta gerðist skyndilega. Fram að þessu höfum við alltaf matað hann, en svo einn daginn vil hann gera það sjálfur.
Annað sem gerðist nýlega er að han reynir að koma fótunum undir sig þegar við höldum á honum. Ef hann fær einhverja mótstöðu fyrir fæturna spyrnir hann í af öllum kröftum. Ég hugsa að það verði ekki langt þar til hann stendur sjálfur í fæturna.
Fleiri myndir: margrethe.wordpress.com

Ny kommentar