Rólegur dagur

06. mai 2008 - Av: Sakki

Japönsku kirsuberjatrén fyrir utan gluggan eru loksins farin að blómstra. (Myndin er að vísu tekin í fyrra, þau líta eins út í ár)
Ég er alveg hissa á því hvað maður getur orðið úrvinda af því að sitja úti í sólinni án þess að gera nokkurn skapaðan hlut...

Frá því að ég tók við kvöldvaktinni á skólanum um klukkan þrjú og þar til sólin settist um áttaleytið hef ég setið úti á lóð ásamt Margrethe og nokkrum vinum okkar. Við höfum varla gert nokkurn skapaðan hlut annað en að grilla og spjalla saman, en samt er ég algerlega úrvinda. Engu að síður er það ósköp yndælt að sitja úti í sólinni, og ef við getum tekið mark á veðurspánni lítur út fyrir að við getum gert hið sama alla næstu daga.

Margrethe er ennþá ólétt, eða möo: krakkinn er enn ekki fæddur. Við erum orðin svolítið óþolinmóð, en við verðum bara að bíða þar til hann er tilbúinn. Ég læt vita þegar eitthvað gerist.

Ingen kommentarer

Ny kommentar

Må fylles ut
Må fylles ut
CAPTCHA image for SPAM prevention
If you can't read the word, click here.
Må fylles ut
Copyright © 2001-2010, Sakarías Ingólfsson | This webpage is powered by TYPO3 CMS
Image manipulation is done with the GIMP, Photoshop Elements, Picasa and iPhoto.
Public domain media fetched from Wikimedia commons unless otherwise noted | Kontaktinfo