Skírn
11. juni 2008 - Av: Sakki

Jæja, þá er hann Markús okkar orðinn mánaðargamall og kominn tími til að velja skírnardag. Að okkar Lútherska sið trúum við nefnilega því að Drottinn veiti frelsi sitt gegn um náðarmeðulin, þám. skírnina.
Markús verður því skírður sunnudaginn 29. júní n.k. í kristniboðssal NLM í Osló
Annars eru ekki aðrar fréttir af drengnum en að han vex og dafnar eins og allir hraustir krakkar eiga að gera. Hann bætir vel á sig og lengist ekki síður. Þar að auki er hann duglegur að sofa á nóttunni. Han vaknar einu sinni um miðja nótt og svo snemma að morgni. Þannig að ef þróunin heldur áfram eins og hún gerir í dag, munum við brátt upplifa átta tíma svefn á ný.
Sjálfur er ég búinn í prófum á Fjellhaug og get loksins tekið sumrinu fagnandi. Ég er að vísu ekki byrjuður að vinna átta tíma á dag ennþá, því ég hef margt annað sem ég þarf að klára. Samt sem áður er yndislegt að fá svolítið frí frá skólanum.

Ny kommentar