Viðtal við trúleysingja

22. mars 2007 - Av: Sakki

Biblían greinir skýrt frá því að ekki allir komast inn í himinn Guðs. Dyr himins eru einungis opnar fyrir þeim sem játa Jesú Krist sem frelsara sinn. Fyrir öllum öðrum eru dyr himins lokaðar. Sá sem veit þetta og trúir því hlýtur að gera allt sem í hans valdi stendur til þess að segja sem allra flestum frá. Hvernig getur maður með góða samvisku horft upp á vini sína, ættingja, stafsfélaga, nágranna, landsmenn eða hvern sem er annan, ganga beint til glötunar?

Ég legg við YouTube myndskeið sem tekið er af heimasíðunni wayofthemaster.com Myndskeiðið er stytt útgáfa af viðtali sem tekið var við trúleysingja nokkurn. Ekki ber á öðru en að afstaða hans sé ávöxtur ítarlegrar umhugsunar og vangavelta. Hann stendur fast við sína skoðun á tilvist Guðs, en hefur einnig mjög athyglisverðar skoðanir varðandi kristindóminn.

Ingen kommentarer

Ny kommentar

Må fylles ut
Må fylles ut
CAPTCHA image for SPAM prevention
If you can't read the word, click here.
Må fylles ut
Copyright © 2001-2010, Sakarías Ingólfsson | This webpage is powered by TYPO3 CMS
Image manipulation is done with the GIMP, Photoshop Elements, Picasa and iPhoto.
Public domain media fetched from Wikimedia commons unless otherwise noted | Kontaktinfo