Vor í lofti

22. april 2008 - Av: Sakki

Síðustu daga hefur hitinn farið upp í 16-18 stig. Þá er gott að geta sest út á svalir.
Síðustu daga hefur ýmislegt gerst. Á meðan við höfum verið að mála og veggfóðra á svefnherberginu og baðherberginu hefur Margrethe þurft að eyða nokkrum tíma uppi á sjúkrahúsi...

Þannig var mál með vexti að Margrethe fékk skyndilgan kláða á fimmtudainn var. Þegar hann ætlaði ekkert að minnka með deginum hringdum við upp á sjúkrahús og við vorum strax beðin um að koma uppeftir. Þar voru teknar nokkrar blóðprufur, sem og hjartalínurit af krakkanum. Niðurstaðan var nokkuð sem heitir meðgöngukláði og stafar af bilun í lifrinni. Enn sem komið er eru viðbröðin mjög væg, og ekki hættuleg, en við eigum að mæta í nýja prufu á föstudaginn kemur.

Á meðan við bíðum eftir þessarri nýju prufu hefur veðrið leikið við okkur. Sólin hefur skinið frá morgni til kvölds frá því fyrir helgi. Hitinn hækkar með hverjum degi og nú í gær fór hann upp í 18 stig. Þetta litla vorkast er sem sagt hlýrra en íslenskt sumar (Eins og fram kemur í þessari skemmtilegu frétt)

Á laugardag kláraði ég líka lítið verkefni sem ég byrjaði á fyrir nokkru síðan. Ég er búinn að mála svefnherbergið og setja veggfóður á einn vegg. Þar að auki hef ég málað alla veggina á baðherberginu.

Er þetta ekki flott?

 

Ingen kommentarer

Ny kommentar

Må fylles ut
Må fylles ut
CAPTCHA image for SPAM prevention
If you can't read the word, click here.
Må fylles ut
Copyright © 2001-2010, Sakarías Ingólfsson | This webpage is powered by TYPO3 CMS
Image manipulation is done with the GIMP, Photoshop Elements, Picasa and iPhoto.
Public domain media fetched from Wikimedia commons unless otherwise noted | Kontaktinfo